Þríhyrningur 12. sept – Hrafntinnusker 19-20 sept.

 

Sæl veriði !
Þríhyrningur.
Marianne bað okkur um að koma því á framfæri að á laugardag fer hópur, sem var saman á Hornströndum í sumar á Þríhyrning, sem er inn af Fljótshlíðini. Hann blasir einmitt við þegar ekið er fram hjá Hvolsvelli. Hann er 675 metra hár og byrjunarhæð er 260 metrar, þannig að hækkunin er 415 metrar.
Allir eru velkomnir með í ferðina. Leiðsögumaður leiðir hópinn. Mæting er hjá N 1 (Fossnesti) kl: 9:45 þar sem safnast verður saman í bíla. Lagt verður af stað kl: 10:00.

Hrafntinnusker, 19-20, september, göngu-og jeppadagur !!
Lítillega er farið að huga að undirbúningi ferðarinnar. Gott væri að fá einhvern meðal hópsins til að keyra með trússið. Þá er auðvitað upplagt fyrir þá sem ekki ganga að bregða sér í bíltúr í Hrafntinnusker. Hver veit nema að einhverjum langi að ganga á laugardag og jafnvel að húkka bílferð til baka.
Áætlað er að leggja af stað kl: 9:00 á laugardagsmorgun frá Samkaupi og raða sér saman í bíla. Stór jeppi verður til taks til að selflytja fólk yfir ána ef ekki er nóg af jeppum. Gangan hefst um hádegisbil, þegar menn eru búnir að næra sig. Óhefðbundna leiðin er í við lengri en hefðbundna leiðin eða um 15 km. Hefðbundna leiðin er 12 km. Í Hrafntinnuskeri verða grilluð læri um kvöldið og reiknað er með sameiginlegum morgunverði, hafragraut, morgunkorni, brauði og kaffi. Verð liggur ekki fyrir en áætlað er að greitt verði fyrir gistinguna og þátttöku í matarkostnaði.
Á sunnudagsmorgun um kl: 9:00 verður lagt af stað á Háskerðing fyrir þá sem vilja. Að  því loknu verður komið við í Skerinu, hvílst og matast og lagt í hann í Laugarnar.
Allir velkomnir, gangandi eða akandi báða dagana.
Gaman væri að þeir sem áhuga hafa á ferðinni, akandi eða gangandi, svari emailinu, auðvitað með fyrirvara um veðurhorfur.