Snaefellsjokull

Snæfellsjökull 8. júní

Farið verður á jökulinn skv. áætlun, brottför frá Samkaup kl:08:00, í fyrramálið laugardag

The trip will be as we planed, departures from Samkaup at 08:00, tomorrow saturday.

Snæfellsjökull er 1446 m hár og hefur oft verið kallaður konungur íslenskra fjalla. Hann var lengi talinn hæsta fjall landsins. Eftir því sem best er vitað klifu Eggert Ólafsson og Bjarni Pálsson tindinn fyrstir manna, árið 1754 frá Ingjaldshóli.

 Fjallið er virk eldkeila sem hefur hlaðist upp í mörgum hraun- og sprengigosum á síðustu 800 þúsund árum. Toppgígurinn er um 200 metra djúpur, fullur af ís og girtur íshömrum. Hæstu hlutar hans eru þrjár þúfur á barmi gígskálarinnar, kallaðar Jökulþúfur og er Miðþúfan þeirra hæst. Jökullinn hefur minnkað á undanförnum árum og er nú um 11 km2 að flatarmáli. Hlíðar jökulsins eru einkar fallegar og víða fléttast hraunið í reipum niður hlíðarnar. Síðast gaus í jöklinum fyrir um 1750 árum og var það stórgos. Þá barst ljós aska yfir norðanvert Snæfellsnes og Vestfirði. Hraun rann niður suðurhlíðar fjallsins og er t.d. Háahraun úr því gosi. Sagt er frá því í Bárðar sögu Snæfellsáss að Bárður hafi gefist upp á samneyti við fólk og að lokum gengið í jökulinn. Upp frá því er Bárður af sumum talinn verndari svæðisins. Jökullinn hefur orðið bæði innlendum og erlendum skáldum og listamönnum að yrkisefni og veitt öðrum innblástur í gegnum tíðina. Sumir finna sterk áhrif frá jöklinum og telja að hann sé ein af sjö stærstu orkustöðvum jarðar.

snaefellsj. Custom

Útbúnaður:
Bakpoki
Vatns og vindheldur öndunarfatnaður, buxur og jakki
Góðir gönguskór sem styðja vel við ökla
Legghlífar
Síðerma bolur úr ull eða gerviefnum
Göngubuxur eða fleece buxur
Ullarsokkar / göngusokkar
Sólgleraugu og sólvörn (20 eða meira) 
Hlý peysa (ull eða fleece)
Auka peysa til að nota í pásum og á köldum dögum ,dún eða primaloftjakka.
Húfa og vettlingar
Nesti (2-4 samlokur og súkkulaði og/eða annað orkunasl)
Vatn (allt að 2- 3L)
Myndavél
Stillanlegir göngustafir
 Matur og drykkur:
Á meðan á fjallgöngunni stendur er stoppað nokkrum sinnum í lengri og skemmri tíma til að nærast og drekka. Mjög gott er að hafa nesti sem samanstendur af sælgæti, t.d. súkkulaði, sem borða má í stuttum pásum og samlokum sem gefa langtíma orku og borða má í löngum pásum.
 Fatnaður:
Að fara á Snæfellsjökul tekur milli 6 og 8 tíma að jafnaði. Búast má við hitastigi á bilinu –5°C og upp í 20°C á hvaða tíma árs sem er. Besta leiðin til að vera undirbúinn fyrir þennan mikla hitamun er að klæða sig í lögum. Það er mjög mikilvægt að klæðast fatnaði næst húðinni sem ekki dregur í sig raka. Ull og ýmis gerviefni eru mjög góð.
Mæting er við Samkaup (Hornið) kl. 8:00, stundvíslega, þar sem safnast verður saman í rútu,komum svo við á bílaplaninu andspænis Olís við Norðlingaholt, um kl:08:40.
Akstur frá Selfossi að jökli tekur um 3,5 klst. Hægt er að geyma tösku með aukafötum og nestisbita í rútunni.
 
Vegalengd um10 km +
Hækkun um 900 m.
Göngutími 6-8 klst.
 
GPS til viðmiðunar
Nauðsynlegat er að skrá sig í ferðina,email: ffarnesinga@gmail.com, skráningu líkur miðvikudaginn 5. júní.  greitt inná 1169-26-1580, kennitala 430409-1580, verð 4000 kr. eða 2000- kr. fyrir þá sem koma á eigin vegum.
Kveðja Ferðafélag Árnesinga