Nesjavellir og nágrenni 3. nóvember

Þar sem Nesjavallaleiðin er lokuð að upphafsstað göngunnar sem áætluð var á Sköflung, þá hefur verið ákveðið að fara göngu dagsins frá Nesjavöllum inn með Stangarhálsi og að Hagavíkurlaugum og þaðan á Sandkletta, Krossfjöll og Skolla og þaðan yfir Stangarháls til Nesjavalla. Þetta er þægileg ganga um móa og mela og vegalengd um 10-12. km.

nes

Ekki mikil hækkun.
Göngutími áætlaður um 3 – 4 klst.
Göngustjóri Bergur Guðmundsson
Brottför af bílaplani við Fjölbrautarskólann á Selfossi kl.09:00. Þar verður sameinast í bíla og sætisverðið er kr.1000-
Athugið að Ferðafélag Árnesinga tryggir hvorki farþega sína né farangur þeirra. Farþegar ferðast með félaginu á eigin ábyrgð þó svo að göngustjóri sé með í för. Félagið hvetur fólk til að vera ferða og slysatryggt í ferðum sínum.
Með göngukveðju ferðanefndin