Milli hrauns og hlíðar, Blákollur – Eldborgir

Milli hrauns og hlíðar, Blákollur – Eldborgir 26. mars

Blákollur er eitt af fjöllunum sem fáir taka eftir á leið sinni eftir Suðurlandsveginum, þetta fjall sem rís 532 m.y.s. er ekki mjög erfitt uppgöngu. Gengið er á það eftir hrygg sem gengur út úr því að NA-verðu.

Þegar upp er komið blasir við okkur ágætis útsýnis eins og til Vestmannaeyja og næst okkur Litla og Stóra Lambafell, Vífilsfell og ýmis fjöll inn til landsins. Síðan liggur leiðin niður á við og stefnt á Syðri Eldborg þar sem við höldum okkur á milli hrauns og hlíðar. Okkur á hægri hönd höfum við t.d. Sauðadalahnúka og Ólafsskarðshnúka. Þegar við höfum skoðað Elborgina höldumvið til baka og stefnum á Nyðri Eldborgina, hraunið sem við göngum nú yfir rann úr Eldborgunum árið 1000 og er kallað Kristnitökuhraun

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 Eins og alltaf þá eru allir velkomnir, kvetjum við alla félagsmenn jafnt sem aðra til að mæta og taka þátt í ódýrri líkamsrækt og göngu í skemmtilegum félagsskap.

Mæting er við Samkaup (Hornið) kl. 9:30, stundvíslega, þar sem safnast verður saman í bíla.

Keyrt er af veginum þar sem skiltið frá Umferðarráði er rétt fyrir ofan Litlu Kaffistofuna, síðan er gengið yfir hraunið í átt að Blákolli.

Vegalengd: um 12 km
 Göngutími: um 4 klst
GPS

Heimildir: Ferlir og alnetið

Með kveðju Ferðafélag Árnesinga