Mígandagróf í Lönguhlíðum 30. mars

Brottför er frá bílaplaninu við FSU kl. 9.00, ekið um Suðurlandsveg og gegnum Hafnarfjörð, um 1. klst akstur er að upphafsstað göngunar. Fyrir þá sem nýta sér sæti hjá öðrum, er gjaldið kr.1.000- 
Bílnum lagt við Vatnsskarði og gengið þaðan inn í Fagradal um 1,5 km, þaðan er 200 metra hækkun upp á brún en síðan beygt og gengið eftir Fagradalsmúla og stefnan sett beint á Mígandagróf. Gengið niður Fagradalsmúla í bakaleiðini. Reikna má með því að einhver snjór sé á svæðinu og verum með búnað sem hæfir aðstæðum.míg
Vegalengd um 12. Km
Göngutími 4-5 klst.
Byrjunarhæð 150. m
Mestahæð 500 .m
Athugið að Ferðafélag Árnesinga tryggir hvorki farþega sína né farangur þeirra. Farþegar ferðast með félaginu á eigin ábyrgð þó svo að göngustjóri sé með í för. Félagið hvetur fólk til að vera ferða og slysatryggt í ferðum sínum.
Göngustjóri Daði Garðarsson
Með göngukveðju ferðanefndin.