Leggjabrjótur 10. október

Kæru félagar Í ljósi aðstæðna og tilmæla frá Almannavörnum fellur niður ferðin um Leggjabrjót.
Við hvetjum alla til að fara í góðan göngu og njóta útiveru. Það bætir sál og líkama.
Kær kveðja frá ferðanefnd

Leggjabrjótur er gömul þekkt þjóðleið. Hefur hún verið vinsæl gönguleið í seinni tíð. Gengið verður frá Þingvöllum niður í Botnsdal. Vegalengd er nær 18 km. Uppsöfnuð hækkun um 460 m. Göngutími áætlaður 5 – 6 tímar. Farið frá FSU Selfossi kl. 8.00 og haldið að þjónustumiðstöðinni á Þingvöllum. Haldið þaðan kl. 8.45 inn að Svartagili og gengið þaðan yfir og niður í Botnsdal. Þar mun rúta ferja okkur aftur að bílunum.leggjabjpg

ATH. nauðsynlegt að hafa grímu til að nota í rútunni.
Þeir sem ekki eru í félaginu greiða 2.000 kr á staðnum fyrir farið.
Þeir sem ætla að kom verða að merkja sig MÆTI eða kvitta í comment til að við höfum fjöldan fyrir rútuna.
Þeir sem þiggja far með öðrum greiði 500 kr fyrir sætið. Gott að vera búin að hafa samband við aðra sem eru tilbúnir að vera með öðrum í bíl.
Göngustjóri á vegum FFÁR
Athugið að Ferðafélag Árnesinga tryggir hvorki farþega sína né farangur þeirra. Farþegar ferðast með félaginu á eigin ábyrgð þó svo að göngustjóri sé með í för. Félagið hvetur fólk til að vera ferða og slysatryggt í ferðum sínum.
Með göngukveðju ferðanefndin