Laxárgljúfur 22. júní UPPSELT
Þessi mikilfenglegu gljúfur í Stóru-Laxá eru í senn hrikaleg og falleg.
Stóra-Laxá á upptök sín í Laxárdrögum sunnan Kerlingarfjalla. Segja má að hin eiginlegu gljúfur byrji þar sem Leirá fellur í Stóru-Laxá úr norðri. Gljúfrin eru u.þ.b. 10 km löng niður að Hrunakrók efst við Laxárdal. Dýptin er 100-200 m. Þrengsti og efsti hlutinn nefnist Svartagljúfur. Á köflum eru gljúfurveggirnir þverhníptir til beggja handa en sums staðar er gljúfrið víðara. Þar má finna ýmsar þursabergsmyndanir og ber þar hæst Fögrutorfu sem er ofarlega í gljúfrunum.
Gljúfrin eru víða torfær eða jafnvel ófær göngumönnum og hafa bæði menn og skepnur fallið niður og slasast.![laxárglj. Large](http://ffar.is/wp-content/uploads/2013/06/laxarglj._Large.jpg)
Gljúfrin eru víða torfær eða jafnvel ófær göngumönnum og hafa bæði menn og skepnur fallið niður og slasast.
![laxárglj. Large](http://ffar.is/wp-content/uploads/2013/06/laxarglj._Large.jpg)
Stóra-Laxá rennur svo silfurtær í botni gljúfranna og eins og nafnið gefur til kynna, oft á tíðum, gjöful laxveiðiá og eru þar mörk Hrunamannahrepps og Skeiða- og Gnúpverjahrepps.
Mæting við Samkaup kl. 9:00 stundvíslega. Þar verður safnast saman í bíla, fargjald 1000 kr. Ökum upp á Flúðir þar sem við sameinustum í rútu sem ekur okkur að uppafsstað göngunnar, og sækir okkur svo í lok göngunnar að Kaldbaki. Verð fyrir sæti í rútunni 1500-
Takmarkaður sætafjöldi, skrá sig inná ffarnesinga@gmail.com, greiða rútugjald kr. 1500 kr. inná 1169-26-1580, kennitala 430409-1580.
Eins og alltaf þá eru allir velkomnir, kvetjum við alla félagsmenn jafnt sem aðra til að mæta.
Vegalengd: um 17 km
Göngutími: 6-7. klst
Byrjunarhæð: 422m
Lokahæð: 215m
Lokahæð: 215m
GPS til viðmiðunar
Göngukveðja Ferðafélag Árnesinga