Kæru félagar.
Nú er komið að næsta gönguverkefni ársins.
Við munum ganga á Laugarvatns- og Snorrastaðafjall.
Gangan hefst við Menntaskólann á Laugarvatni og göngum við upp á Laugarvatnsfjall og tökum lítinn hring þar áður en við göngum áfram á Snorrastaðafjall.
Þar stoppum við og borðum nesti og förum svo smá hring í bakaleiðinni.
Hækkun verður ca. 500 m og vegalengdin um 12-15 km.
Á góðum degi er afar fallegt útsýni til allra átta, t.d. yfir Laugardalinn og til Kálfstinda.
Nauðsynlegt er að vera vel búinn með gott nesit. Ekki gleyma að taka með broddana.
Hittumst við FSU á Selfossi kl. 9.00 og sameinumst í bíla á Laugarvatn.
Hittum göngustjóran á planinu við Mentaskólan á Laugarvatni.

Göngustjóri Dóra Þorleifsdóttir
Athugið að Ferðafélag Árnesinga tryggir hvorki farþega sína né farangur þeirra. Farþegar ferðast með félaginu á eigin ábyrgð þó svo að göngustjóri sé með í för. Félagið hvetur fólk til að vera ferða og slysatryggt í ferðum sínum.
Með göngukveðju ferðanefndin
Með göngukveðju ferðanefndin