Komdu út að ganga með okkur í september

Lýðheilsugöngur Ferðafélags Íslands og deilda verða á öllu landinu nú í september. Göngurnar munu fara fram alla miðvikudaga í september kl. 18:00. Þetta eru fjölskylduvænar göngur sem taka  u.þ.b. 60-90 mínútur og er tilgangur þeirra að hvetja fólk til útivistar og hreyfingar í góðum félagsskap og efla þar með heilsu sína og lífsgæði.

http://fi.is/lydheilsa

Munið:

  • September 2018
  • Alla miðvikudaga kl. 18:00
  • Náttúra, vellíðan, saga og vinátta
  • Fjölskylduvænar 60-90 mínútna göngur
  • Í flestum sveitarfélögum landsins
  • Allir velkomnir – þátttaka ókeypis

Reimið endilega á ykkur skóna, komið út að ganga með Ferðafélagi Íslands og Ferðafélagi Árnesinga á miðvikudögum í september og njótum náttúrunnar í sameiningu.

Mæting í allar göngurnar á Árborgarsvæðinu eru hjá Fjölbrautarskólanum á Selfossi, sameinast í bíla.

  • 5. september, Hellisskógur
  • 12. september, Með fram Ölfusá til vesturs
  • 19. september, Þrastaskógur
  • 26. september, Silfurberg – Kögunarhóll

Lifum og njótum!

Ferðafélag Árnesinga