Inghóll

Kveðjum veturinn með kvöldgöngu á Ingólfsfjallið

Um leið og félagið óskar ykkur gleðilegs sumars og þakkar fyrir góða þátttöku í gönguferðum vetrarins, höfum við ákveðið að vera með kvöldferð 18. apríl n.k.síðasta vetradag (frídagur daginn eftir).Von okkar er að sjá ykkur sem flest í þá göngu.

Upphafsstaður göngunnar er á  milli Alviðru og Tannastaða bæjana, og þaðan beint af augum upp á brún Ingólfsfjalls, og síðan á Inghóll (551) og stefnum svo á suður brúnir fjallsins upp af Djúpadal, þar sem gestbókin bíður okkar.

Þetta er svolítið brött byrjun, en engum verður meint af því.
Vegalengd: um 7. Km
Göngutími: um 3. Klst
Byrjunarhæð: 50m
Mestahæð: 551m

GPS til viðmiðunnar

Eins og alltaf þá eru allir velkomnir, hvetjum við alla félagsmenn jafnt sem aðra til að mæta og taka þátt í göngu í skemmtilegum félagsskap.
Lagt verður af stað frá Þórustaðarnámu kl. 18:30, stundvíslega.
Þar verður safnast saman í rútu og okkur keyrt austur fyrir fjallið að upphafsstað göngunnar, gjald kr. 500-.
Útbúnaður: hlífðarfatnaður, eitthvað að maula og drekka og þar sem gangan er að kvöldi til og við gætum lent í því að það verði farið að skyggja í lok göngunnar, er mælt með því  að taka með sér ljós.

Heimildir: könnun á vettvangi.

Með göngukveðju Ferðafélag Árnesinga