Högnhöfði laugardaginn 20. júní

Þá er að búa sig undir göngugleði júnímánaðar. Nú verður komið saman í Úthlíð og notið þar þjónustu heimamanna. Þaðan verður ekið áleiðis að Högnhöfða og síðan gengið á höfðann. Ökuleið fær slyddujeppum. Snjór efst á gönguleiðinni og kannski einhver aurbleyta. En útsýnið og gönguleiðin er hverrar mínútu virði. Svo nú er að lesa meira …. og koma svo! 

Högnhöfði  laugardaginn 20. júní. 

Fyrirkomulag;

9:30
Samkaup, lagt af stað og sameinast í bíla.
10:30
 Komið í Réttina í Úthlíð þar sem Ólafur og Inga taka á móti fólki.
10:45
Ekið áleiðis að Högnhöfða  (Kúadal eða Litlhöfði) með viðkomu í Brúarárskörðum. Um er að ræða 8 km leið eftir grófum vegi. Upphaf vegarins er við bæinn.
11:00
 Gangan hefst og er hún um 5 km að lengd. Byrjunarhæð er um 250 m og tindurinn er í 1,002 m hæð. Uppganga tekur um 3,5-4,5 klst og gangan öll um 6-7 klst.
Ca 17:00
Komið i Réttina þar sem boðið verður upp á Kaffihlaðborð. Verð pr mann kr 1,500 + sund.
Einnig er boðið upp á sund og heita potta. Munið eftir sundfötum.

Athugið að tjaldstæði öll þjónusta er í  Úthlíð. 1500 kr tjaldstæði pr tjald pr nótt. 1800 pr hjólhýsi/húsbíll nóttin.
1700 kr á golfvöllinn fyrir þá sem hafa áhuga á því.

Högnhöfði.

Fjallið er mikið um sig og aflangt frá norðaustri til til suðvesturs og er móbergshryggur eða vanþroska móbergsstapi úr gosi á jökulskeiði er lauk fyrir um  tíu þúsund árum.  Það er 1,002 m hátt og er bratt  og klettótt nánast allt í kring  nema að vestan. Þar er fjallið lægst, en þar er hnjúkur um 814 m hár. Þaðan hækkar fjallið í hjöllum inn á hátind. Leiðin austur á hátind er drjúglöng og talsvert gróin, en þó nokkrar skriður en lítið um kletta.

Útsýni af Högnhöfða er mikið. Hlöðufell í norðri og einnig Langjökull með Hagafellsjökli. Lengst suðvestur frá eru Kálfstindar og þaðan í norðaustur Mosaskarðsfjall, Fagradalsfjall og Brekknafjöll við Hagavatn.  Þar inn af koma síðan Jarlhettur. Þá sést Bláfell við Kjalveg. Austur af sér allt til Vatnajökuls. Enn fremur sést Búrfell í Þjórsárdal og Hekla og einnig Tindfjöll og Eyjafjallajökull. Í suðri blasa við Hestfjall, Mosfell og Vörðufell. Handan Brúarárskarða er Rauðafell, Klukkutindar, Skriðan, Skriðutindar og Skjaldbreið í framhaldi. Einnig sést Fanntófell við Kaldadal.

Brúarárskörðin.

Algengasta leiðin í Brúarárskörð er frá bæjunum við  Hlíðina. Hægt er að aka lítið eitt inn með ánni í einskonar forsal hamrahallarinnar. Sé ætlunin að ganga upp er ágætt að fara inn í Hvamm en þar er rennislétt grasflöt undir skógi vöxnum hlíðum og er fallegra tjaldstæði vandfundið. Úr hvamminum hefur á síðustu árum myndast göngugata beint upp hlíðina. Gangan er mörgum erfið vegna þess að gatan liggur hvergi í sneiðingum og brekkan er snarbrött. Fullfrískt fólk er um 20 mínútur þarna upp. Brúarárskörðin eru um 3-4 km að lengd. Þar er eitt dýpsta og tröllslegasta gljúfur sýslunnar.

Útbúnaður í dagsferð.

Fyrir gönguna:                   Fatnaður:                                Nesti:
Bakpoki 20-40 lítra            Ullarbolur, innst                     Brauð/flatkökur
Göngustafir, ef vill             Þunn flís/ullarpeysa                Feitt álegg
GPS,  kort                          Þykk flís/ullarpeysa                 Hrökkbrauð
Vatnsflöskur                      Vatns-og vindhellt úlpa           Kex, súkkulaði
Hitabrúsi,                          Sama fyrir fætur                    Hnetur, rúsínur
Myndavél                           Lambhúshetta                      Þurrkaðir ávextir
Sólvörn, sólgleraugu         Húfa, vettlingar                     Orkusúkkulaði
Varasalvi                           Gönguskór, vettlingar            Orkudrykkir
Plástur, hælsæri               Buff                                      Kaffi/kakó/te
Verkjatöflur                       Bómull ekki notuð                  Þurrdjús
Þurrkur, wc-pappír           Gallabuxur, ekki notað            Harðfiskur

Önnur heilræði:
Borða góða máltíð daginn áður og góðan morgunverð áður en lagt er af stað.
Drekka vel daginn áður og passa að hafa nóg vatn á göngu.
Klæðast mörgum lögum af fötum til að tempra hita.
Klippa táneglur !!!!