Hellisskógur

Miðvikudagskvöldið 17. desember verður ganga í Hellisskóg. Þar ætlum við að eiga saman notalega stund í Hellinum við kertaljós. Safnast verður saman á bílaplaninu innan við hliðið í Hellisskóginum kl 18:30. Róleg ganga við allra hæfi. Allir velkomnir og þátttökugjald ekkert. Mælst er til að þau ykkar sem vilja vita hvar þið stígið niður, komi með ljós. Boðið verður upp á kakó og meðlæti.

aðventa
Að endingu viljum við þakka öllum þeim sem gengu með félaginu á árinu kærlega fyrir árið og hlökkum til að sjá ykkur með hækkandi sól.
Fyrsta ferð ársins 2015 sem farin verður 3. janúar er hefðbundin, farið verður á Inghól og óskum Ingólfi gleðilegs nýs árs.

Með jóla og göngukveðju,
Ferðafélag Árnesinga