Göngum á Gullkistu á Miðdalsfjalli, gangan er ca. 10 km og hækkun ca. 670 metrar. Af Gullkistu er geysimikið útsýni og við gefum okkur góðan tíma og áætlum að vera á göngu í 4 – 5 klst. Gangan er aðeins á fótinn í upphafi en ætti að vera við hæfi flestra sem eru vanir göngum. Leggjum af stað frá FSU Selfossi kl 9.00 á einkabílum eða hitta hópinn við afleggjaran upp á Miðdalsfjall en þaðan leggjum við af stað kl 10.00 Hlökkum til að sjá sem flesta.
Göngustjóri Magnús Baldursson – Sigrún Jónsdóttir
ATH. Ferðafélag Árnesinga tryggir hvorki farþega sína né farangur þeirra. Farþegar ferðast með félaginu á eigin ábyrgð þó svo að göngustjóri sé með í för. Félagið hvetur fólk til að vera ferða- og slysatryggt í ferðum sínum.
