Gönguræktin 14. desember

Miðvikudagskvöldið 14. desmber verður kvöldganga í Hellisskóg, þar ætlum við að eiga saman notalega stund í Hellinum við kertaljós. Árni Erlingsson þúsundþjalasmiður mun fræða göngufólkið um allt sem honum dettur í hug. Safnast verður saman við Samkaup (Hornið) á Selfossi og lagt af stað kl 18:30. Róleg ganga við allra hæfi. Allir velkomnir og þátttökugjald ekkert, mælst er til að þau ykkar sem vilja vita hvar þið stígið niður, komi með ljós . Boðið verður upp á kakó og meðlæti.

Að endingu viljum við þakka öllum þeim sem gengu með félaginu á árinu kærlega fyrir árið og hlökkum til að sjá ykkur með hækkandi sól.

Fyrsta ferð ársins 2012  sem verður 7 janúar er óvissuferð.
Takk fyrir okkur, ferðanefndin.

Með jóla og göngukveðju Ferðafélag Árnesinga