Geitafell

Geitafell 7. maí

 

Geitafell er 509 metrar á hæð. Það er vestan Þrengslavegar. Fjallið stendur örlítið stakt og á góðum degi er afar víðsýnt af því.

Mæting er að venju við „Hornið“ á Selfossi kl. 09:00, sameinast þar í bíla og ekið að Litla Sandfelli (vegur 39). Þaðan verður gengið af stað um kl. 9:30. Í byrjun er gengið yfir nokkuð slétt hraun að Geitafelli (ca. 2 km). Leiðin á fjallið er ekki brött og þegar hæðsta toppi er náð verður gengið niður af fjallinu í suður (suðvestur) og haldið með fram því í austur að upphafspunkti. 
Geitafell
Leiðarval getur breyst með tilliti til snjóalaga.

Hækkun ca 300 m og áætluð vegalengd í km 12 – 13. Reikna má með 5 – 6 tímum á göngu.

Munið eldsneytispening 1000 kr fyrir þá sem fá far með öðrum.

Við minnum á fatnað við hæfi, gott nesti og nóg að drekka því að sjálfsögðu verður tekin nestispása. Í vetrarferðum mælum við eindregið með því að fólk hafi göngubrodda meðferðis.
Athugið að Ferðafélag Árnesinga tryggir hvorki farþega sína né farangur þeirra. Farþegar ferðast með félaginu á eigin ábyrgð þó svo að göngustjóri sé með í för. Félagið hvetur fólk til að vera ferða- og slysatryggt í ferðum sínum.

Með kveðju frá ferðanefnd