Fjallgöngumessa

Fjallgöngumessa á Ingólfsfjalli

Sunnudaginn 10. júlí verður fjallgöngumessa á Ingólfsfjalli.  Lagt verður af stað frá malargrifjunum kl. 15 og gengið í rólegheitum upp fjallið.  Lesnir verða viðeigandi ritningartextar áður en lagt er af stað og svo tvisvar á leiðinni upp.  Þegar upp er komið verður stutt helgistund með hugvekju, bæn og söng.  Prestur í fjallgöngumessunni verður sr. Óskar Hafsteinn Óskarsson.  Um nýbreytni í helgihaldinu er að ræða en þar sem svo margir leggja leið sína á fjallið í viku hverri þótti við hæfi að bjóða fólki upp á að slá tvær flugur í einu höggi með því að fara á fjallið og ná sunnudagsmessunni um leið!  Vonast er til að allt göngufólk á svæðinu fjölmenni í fjallgöngumessuna en samveran á að henta vel fólki á öllum aldri.  Fjallgöngumessan er skipulögð í samráði við Fríska Flóamenn og fleira áhugafólk um útivist á svæðinu.  Sjáumst á sunnudaginn við fjallið kl. 15 – allir velkomnir!