F.Í

Afmælistilboð Ferðafélags Íslands á útivistafatnaði

                   

FÍ göngujakkar og peysur á tilboðsverðiFÍ kvenjakki

Ferðafélag Íslands verður 90 ára á næsta ári og af því tilefni býðst félagsmönnum að kaupa sérmerkta göngujakka og peysur á frábæru afmælistilboðsverði.

Um er að ræða Marmot Minimalist Goretex göngujakka á 20 þúsund krónur og Marmot Stretch Fleece göngupeysu á 10 þúsund krónur. Hægt er að kaupa annað hvort jakkann eða peysuna eða hvoru tveggja á samanlagt 29 þúsund krónur.

Fatnaðurinn kemur í kven- og karlasniði og í stærðum frá XS og upp í XXL.

Félagsmenn eru boðnir velkomnir á skrifstofu FÍ, Mörkinni 6 til að skoða og máta flíkurnar og panta í leiðinni. Einnig er hægt að panta beint með því að smella hér og fylla út sérstakt pöntunareyðublað.

Síðasti pöntunardagur er mánudagurinn 24. október.

Vinsamlegast athugið að þar sem um er að ræða stóra hóppöntun með miklum afslætti þá er ekki hægt að afhenda fatnaðinn fyrr en síðsumars 2017.

Sjá nánar um tilboðið og myndir af flíkunum.