Aðalfundur 2018

Aðalfundur Ferðafélags Árnesinga  verður í Karlakórsheimilinu, Eyravegi 67 á Selfossi fimmtudaginn 22. mars kl: 20:00.
Hefðbundin aðalfundarstörf.
 
***Skýrsla formanns
***Ársreikningar lagðir fram og skýrðir
***Umræður um ársreikning og skýrslu formanns.
***Kosningar
***Atkvæðisrétt hafa allir fullgildir meðlimir félagsins.
***Önnur mál.
Á undan aðalfundinum mun Ágúst Sigurjónsson og Sigrún Hreiðarsdóttir segja okkur frá mjög áhugaverðri og skemmtilegri göngu á Grænlandi s.l. sumar. Þegar því er lokið verður boðið upp á veitingar og aðalfundurinn mun svo hefjast í framhaldi af því.

Með kveðju Ferðafélag Árnesinga