Að venju er síðasta ganga ársins í Hellisskógi og endað í Hellinum. Eigum þar stund saman með súkkulaði og piparkökum. Gott væri að hver kæmi með sinn bolla. Létt og þægileg ganga.
ATH. það getur verið hálka á stígunum og því gott að hafa brodda. Allir velkomnir. Tilvalið fyrir afa, ömmur og barnabörn. Gangan hefst kl. 18.00 á bílaplaninu í Hellisskógi. Sjáumst og njótum samveru. Stjórn FFÁR