Fyrsti vetrardagur. Gengið verður í Tungufellsdal og nágrenni. Gangan hefst rétt innan við bæinn Tungufell í Hrunamannahreppi. Tekin verður hringur og verður aðeins tekið mið af veðri. Gönguland er nokkuð þægilegt og lítil hækkun.
Farið verður frá FSU kl. 8.30. Um klukkustundar keyrsla að Tungufelli.
Göngustjóri Björg Halldórsdóttir
Athugið að Ferðafélag Árnesinga tryggir hvorki farþega sína né farangur þeirra. Farþegar ferðast með félaginu á eigin ábyrgð þó svo að göngustjóri sé með í för. Félagið hvetur fólk til að vera ferða og slysatryggt í ferðum sínum.
Með göngukveðju ferðanefndin
Með göngukveðju ferðanefndin