Súlufell í Grafningi

 
Súlufell varð fyrir valinu sem fjall eða fell í Grafningnum.
Er það um 440 m hátt en nokkuð þægileg gönguleið á það. Gengið eftir vegslóða til að byrja með en síðan taka við melar og móar. Er sjálft fjallið nokkuð gott uppgöngu þegar að því er komið. Útsýni er óhindrað til allra átta. Vegalengdinn er ekki nema 8 – 10 km og uppsöfnuð hækkun 450 m.
Getur hentað vel fyrir minna vana.
ATH. Ferð getur aðeins tekið breytingum eftir veðri og færð.
Jafn verið verið færð yfir á sunnudag ef veðurspáin er betri þá. Ef það verður breyting kemur það inn á fimmtudagskvöld.
Alltaf er nauðsynlegt að taka með sér brodda þegar haldið er á fjalla að vetri til. Góður hlífðarfatnaður og nesti er nauðsynlegt að hafa með, þó ferðin sé ekki löng.
Hittumst við FSU kl. 8.30 og sameinumst í bíla. Höldum að Króki í Grafningi þar sem við höfum fengið leyfi til að leggja bílum.
Göngustjóri Björg Halldórsdóttir
 
Athugið að Ferðafélag Árnesinga tryggir hvorki farþega sína né farangur þeirra. Farþegar ferðast með félaginu á eigin ábyrgð þó svo að göngustjóri sé með í för. Félagið hvetur fólk til að vera ferða og slysatryggt í ferðum sínum.
Með göngukveðju
ferðanefndin