Standgangan 2026
Gangan hefst að þessu sinni við Örfirisey (við Olís Ánanaust 12) og gengið verður upp í Gufunes. Reynt verður að fylgja strandlengjunni eins mikið og hægt er. Gengið verður mest á göngustígum og hækkun lítil sem engin. Áætluð vegalengd er á bilinu 18 – 20 km og má reikna með 5 – 6 tímum í ferðina. Mæting er við FSu kl. 8:00 og sameinast í bíla. Keyrum til Reykjavíkur og leggjum bílunum í Gufunesi. Þaðan mun rúta ferja okkur á upphafstað göngunnar. Væntanlega verður gengið af stað um kl. 9:15.
Ekki þarf að greiða fyrir rútufarið, það er í boði félagsins.

Göngustjóri Hulda Svandís Hjaltadóttir
Athugið að Ferðafélag Árnesinga tryggir hvorki farþega sína né farangur þeirra. Farþegar ferðast með félaginu á eigin ábyrgð þó svo að göngustjóri sé með í för. Félagið hvetur fólk til að vera ferða og slysatryggt í ferðum sínum.
Með göngukveðju ferðanefndin
Með göngukveðju ferðanefndin