Nesjaskyggnir 24. maí

Breyting á ferð 24. maí.

Við stefnum á Nesjaskyggni í Henglinum. Haldið er inn á Ölkelduháls. Þar hefst gangan nálægt Kýrgilshnúk. Þræðum okkur þar með giljum og förum á Nesjaskyggni. Þaðan stefnum við svo á leiðina sem liggur niður í Innstadal og förum til baka þar sem heita Þrengsli. Vegalengdinn er um 15. km og heildar hækkun 600 m. Mest er þetta nokkuð þægilegt gönguland. Vonum að veðrið verði með okkur í liði og gefum okkur bara góðan tíma.
Förum frá FSU kl. 8.30 Þaðan er farið inn á Ölkelduháls.
Vegurinn þar er svolítið grófur og reynum við sem erum á hærri bílum að bjóða hinum með.
Göngustjóri Björg Halldórsdóttir
Athugið að Ferðafélag Árnesinga tryggir hvorki farþega sína né farangur þeirra. Farþegar ferðast með félaginu á eigin ábyrgð þó svo að göngustjóri sé með í för. Félagið hvetur fólk til að vera ferða og slysatryggt í ferðum sínum.
Með göngukveðju ferðanefndin