Komdu út að ganga með okkur í september
Lýðheilsugöngur Ferðafélags Íslands (FÍ) verða á öllu landinu nú í september og eru einn af hápunktunum í glæsilegri afmælisdagskrá FÍ en félagið fagnar 90 ára afmæli á árinu. Göngurnar munu fara fram alla miðvikudaga í septembermánuði kl. 18:00. Þetta eru fjölskylduvænar göngur sem taka u.þ.b. 60-90 mínútur og er tilgangur þeirra að hvetja fólk til útivistar og hreyfingar í góðum félagsskap og efla þar með heilsu sína og lífsgæði.
http://lydheilsa.fi.is/#skraning
MYNDIR ÚR GÖNGU KVÖLDSINS 6.sept.
MYNDIR ÚR GÖNGU KVÖLDSINS 13.sept.
Munið:
- September 2017
- Alla miðvikudaga kl. 18:00
- Náttúra, vellíðan, saga og vinátta
- Fjölskylduvænar 60-90 mínútna göngur
- Í flestum sveitarfélögum landsins
- Allir velkomnir – þátttaka ókeypis
Reimið endilega á ykkur gönguskónna, komið út að ganga með Ferðafélagi Íslands og Ferðafélagi Árnesinga á miðvikudögum í september og njótum náttúrunnar í sameiningu.
Mæting í allar göngurnar á Árborgarsvæðinu eru hjá Fjölbrautarskólanum á Selfossi,sameinast í bíla.
- 6. september, Hellisskógur
- 13. september, Niður með Ölfusá til vesturs
- 20. september, Þrastaskógur
- 27. september, Silfurberg – Kögunarhóll
Lifum og njótum!
Ferðafélag Árnesinga