Lýðheilsugöngur Ferðafélags Íslands og deilda verða á öllu landinu nú í september. Göngurnar munu fara fram alla miðvikudaga í september kl. 18:00. Þetta eru fjölskylduvænar göngur sem taka u.þ.b. 60-90 mínútur og er tilgangur þeirra að hvetja fólk til útivistar og hreyfingar í góðum félagsskap og efla þar með heilsu sína og lífsgæði.
Munið:
- September 2018
- Alla miðvikudaga kl. 18:00
- Náttúra, vellíðan, saga og vinátta
- Fjölskylduvænar 60-90 mínútna göngur
- Í flestum sveitarfélögum landsins
- Allir velkomnir – þátttaka ókeypis
Reimið endilega á ykkur skóna, komið út að ganga með Ferðafélagi Íslands og Ferðafélagi Árnesinga á miðvikudögum í september og njótum náttúrunnar í sameiningu.
Mæting í allar göngurnar á Árborgarsvæðinu eru hjá Fjölbrautarskólanum á Selfossi, sameinast í bíla.
- 5. september, Hellisskógur
- 12. september, Með fram Ölfusá til vesturs
- 19. september, Þrastaskógur
- 26. september, Silfurberg – Kögunarhóll
Lifum og njótum!
Ferðafélag Árnesinga