Laugardaginn 13. júní förum við á Kálfstinda.
Kálfstindar eru hluti af langri fjallaröð sem teygir sig frá Lyngdalsheiði og til norður-austurs inn á hálendið ofan Laugarvatns. Þetta eru móbergsfjöll, sum eru ávöl og slétt að ofan meðan önnur skarta hvössum tindum og skörpum hryggjum.
Þetta svæði er sannkallaður fjallagarður sem gaman er að heimsækja þar sem bíða mörg spennandi verkefni. Mikið útsýni er af Kálfstindum í allar áttir.
Við förum upp Flosagil og þaðan upp á einn af Kálfstindunum. Ef veður leyfir tökum við hring og förum að Kálfsgili og þar niður meðfram gilinu og í áttina að Þverfelli. Einnig er gaman að ganga inn í gilið ef veður er þurrt.
Vegalengdin er í kringum 8-9 km. og hækkunin um 700 m. Göngutími 5-6 klst.

Hittumst við FSU kl. 8.30 og sameinumst í bíla.
Hittum göngustjóran á Laugarvatnsvöllum – áleiðis að Laugarvatnshelli.
Hittum göngustjóran á Laugarvatnsvöllum – áleiðis að Laugarvatnshelli.
Göngustjóri Dóra Þorleifsdóttir
Athugið að Ferðafélag Árnesinga tryggir hvorki farþega sína né farangur þeirra. Farþegar ferðast með félaginu á eigin ábyrgð þó svo að göngustjóri sé með í för. Félagið hvetur fólk til að vera ferða og slysatryggt í ferðum sínum.
Hægt er að fylgjast með starfsemi félagsins hér og sjá myndir úr ferðum.
Með göngukveðju ferðanefndin
Með göngukveðju ferðanefndin