Jólakakó í Hellisskógi 7.desember

Að venju er síðasta ganga ársins í Hellisskógi og endað í Hellinum.
Að þessu sinni verðum við á sunnudagsmorgni.
Eigum þar stund saman með súkkulaði og piparkökum.
Gott ef hver kæmi með sinn bolla.
Létt og þægileg ganga með vasaljós/höfuðljós í upphafi ferðar.
ATH. það getur verið hálka á stígunum og því gott að hafa brodda.
Allir velkomnir.
Tilvalið fyrir afa, ömmur og barnabörn.
Gangan hefst kl. 10.00 á bílaplaninu í Hellisskógi.
Sjáumst og njótum samveru.
Stjórn og ferðanefnd FFÁR