Ingolfsfjall 16.03.13

Ingólfsfjall 16. mars

     Í þessari lýsingu fyrir næstu gönguferð sem verður hringferð upp á fjallinu, um suður, austur, norður og vesturbrúnir, rifjum við upp helstu örnefni og kennileiti í og við fjallið.

 

  Byrjum talninguna vestast, Fjallsöxl (Silfurbergið), Smjörbrekkur, Klettabrekka, Arnarnípa, Ámundarmúli (munnmæli segja að Erlendur gamli lögmaður á Strönd í Selvogi hafi vegið þar mann), Ýmuskarð, Stóraskriða, Djúpidalur (helsta gönguleiðin á fjallið), Markhamar (landamerki Árbæjar og Þórustaða), Birgisbrekka, Helluhnúkur, Breiðabrekka, annar Markhamar (landamerki Árbæjar og Hellis), Markasteinn (er stór steinn er stendur fyrir neðan hamarinn, landamörkin aðeins vestar), Eyðihvammur (dalur eða lægð í fjallinu), Eyðihvammsskriða (er stór skriða austanvert við Eyðihvamm), Eyðhvammsskarð (er fyrir ofan Eyðihvammskriðu), Sængurkonusteinn, margt væri hægt að segja um hann, hér er ein saga: Vegerðin gróf skurð fyrir 1960 og þá var Sængurkonusteininn fyrir svo þeir settu hann ofan í holu, en þegar grein var skrifuð um steininn í Morgunblaðið 21. Sept. 1967, varð það til þess að steinninn var sóttur í holuna og settur á flöt skammt n.v af Blákolli. Næst kemur Hrútabrekka (er nokkuð upp í fjallinu, skammt fyrir ofan Blákoll), Blákollur(hann hrappaði úr fjallinu í jarðskálftanum 1896), Brennidalur, Brennugil, Brennudalseggjar, Kvíadalur, Flataberg, Saumakonusteinn (er svo til beint upp af og nokkuð fyrir ofan steinþróna við Fjallslækjarlindina).Tannastaðadalur, Gönguskarð (gönguleið upp á Inghóll frá Alviðru), Tindastóll (hár klettur í landi Alviðru), Grænhóll, Ferðamannagil, Miðmundagil, Kagi, Kallbakur, Kagagil, Stóraurð, Leirdalir, Leirdalahnúkar, Hólstaðagil.

Örugglega er hægt að bæta fleiri örnefnum í þessa upptalningu, ef einhverjir vilja bæta við þetta,  endilega sendi þá okkur póst á ffarnesinga@gmail.com og við uppfærum hana.

Mæting er við Samkaup (Hornið) kl. 9:00,  stundvíslega,  þar sem safnast verður saman í bíla, eða við Þórustanámu þar sem gangan hefst.
 

Vegalengd: um 16 km

Göngutími: um 5. klst.

GPS til viðmiðunar

Heimild:Árni Erlingsson, veraldarvefurinn

Kveðja Ferðafélag Árnesinga