Hellisskógur

Gönguræktin miðvikudagskvöldið 11. desember verður með göngu í Hellisskóg, þar ætlum við að eiga saman notalega stund í Hellinum við kertaljós. Óskar H. Óskarsson prestur mun segja nokkur orð og sungin verða jólaljög.  Safnast verður saman á bílaplaninu innan við hliðið í Hellisskóginum kl 18:30. Róleg ganga við allra hæfi. Allir velkomnir og þátttökugjald ekkert, mælst er til að þau ykkar sem vilja vita hvar þið stígið niður, komi með ljós. Boðið verður upp á kakó og meðlæti.
Að endingu viljum við þakka öllum þeim sem gengu með félaginu á árinu kærlega fyrir árið og hlökkum til að sjá ykkur með hækkandi sól.
Fyrsta ferð ársins 2014 sem farin verður 5. janúar er efðbundin, farið verður á Inghól og óskum Ingólfi gleðilegs nýs árs.
 

Með jóla og göngukveðju Ferðafélag Árnesinga