Göngugleði ágústmánaðar verður laugardag 15. ágúst frá Þakgili í nágrenni Mýrdalsjökuls. Gönguferðin mun hefjast kl 11 að morgni svo þeir sem ekki ætla að gista geti komist á skikkanlegum tíma frá Selfossi og nágrenni. Endað verður með smá grillveislu. Nánari fréttir verða hér á heimasíðunni fljótlega. Takið daginn frá!

Nú á að vera búið að senda út félagsgjöld til allra félagsmanna í Ferðafélagi Árnesinga. Félagið er deild í FÍ og njóta félagsmenn allra sömu réttinda og aðrir félagar í FÍ. Félagsgjaldið skiptist svo milli deildarinnar og móðurfélagsins. Því er nóg að borga félagsgjaldið frá okkur. Í einhverjum tilvikum höfðu félagsmenn í Ferðafélagi Árnesinga ekki tilgreint að þeir vildu færa  félagsaðild sína og hafa því fegið tvær rukkanir. Þar sem svo háttar til, er fólk beðið um að hafa samband við okkur með tölvupósti á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.

Eins hefur borið við að hjón hafa bæði fengið rukkun um fullt árgjald, en helmings afsláttur er á árgjaldi annars hjóna, þótt bæði haldi fullum réttindum. Eru félagsmenn eins beðnir að hafa samband við okkur með tölvupósti ef svona háttar um. Þetta eru smá byrjunarörðugleikar við stofnun nýrrar félagsdeildar, en við kippum þessu öllu í liðinn.

Þegar fólk hefur greitt félagsgjöld sín, getur það komið við á skrifstofu formannsins, Jóns G. Bergssonar, hjá Kjarna Bókhaldi á Austurvegi 6 og sótt bæði félagsskírteini sitt og Árbók. Fljótlega eftir verslunarmannahelgi munum við fara yfir greiðslurnar og keyra þetta út til þeirra sem greitt hafa en ekki sótt sitt.

Til stendur að halda félagsfund um miðjan september og fá góðan gest á fundinn. Þá verða lögð drög að starfi félagsins á komandi vetri og ferðaáætlun fyrir næsta ár, en hún þarf að berast FÍ ekki seinna en í október svo hún komist inn í ferðabæklinginn.

Gönguræktendur miðvikudagkvöldsins eru óstjórnlega gönguglaðir og hyggja á tvær gönguferðir um helgina. Af því fólk er í sumarfríum og einstakir dagar henta þvi mis vel, verða farnar tvær ferðir um komandi helgi. Gengið verður á Búrfell í Grímsnesi á föstudagskvöld og Meitlana á sunnudagsmorgun.

Félagsskírteini og Árbók
Árbókin og félagsskírteinin eru til afgreiðslu hjá stjórn félagsins. Eindagi er 15. júlí. Dráttarvextir og kostnaður reiknast ekki eftir gjalddaga. Skírteinin veita afslátt í skála, tjaldsvæði og ferðir FÍ og afslátt í mörgum verslunum. Árbókin 2023 að þessu sinni er Flóinn - milli Ölfusár og Þjórsár höfundar Inga Lára Baldvinsdóttir, Magnús Karel Hannesson og Jóhann Óli Hilmarsson

Gönguræktin á Selfossi
Gönguræktin er alla miðvikudaga kl:20:00. frá Fjölbrautarskólanum. Gengið er um bæinn og næsta nágrenni. Léttar göngur fyrir alla. Nánari upplýsingar á Fésbókinni.

Styrktaraðilar

Go to top