Hlíðarkista er á Hlíðarfjalli fyrir ofan bæinn Hlíð í Gnúpverjahreppi. Þegar upp er komið er fátt sem skyggir á útsýnið yfir sveitirnar og fjallahring. Gangan á fjallið er frekar þægileg. Vegslóði upp og gróið heiðarland.

Göngutími er 3 - 4 klst. Hækkun ca. 250 m.
Farið frá FSU Selfossi kl. 8.30
Þeir sem þiggja far með öðrum greiði fyrir.
Ekið í átt að Árnesi og farin vegur 326 að bænum Hlíð
Með göngukveðju ferðanefndin