Helgafell – Valahnjúkar – Húsfell 1. febrúar
Rétt innan við Hafnarfjörð standa nokkur fjöll sem við ætlum núna að skoða. Lagt verður upp frá Kaldárseli og gengið sem leið liggur upp á Helgafellið,
þar sem spáð verður í útsýnið. Þegar við höfum fengið nóg af útsýninu verður haldið niður á við og gengið á Valahnjúka og Húsfell, lítum kannski við í Valabóli og Músahelli.
Vegalengd: um 11 km
Göngutími: um 4 klst
Byrjunarhæð: 130. m
Byrjunarhæð: 130. m
Mestahæð: 338. m
GPS til viðmiðunnar
Eins og alltaf þá eru allir velkomnir, kvetjum við alla félagsmenn jafnt sem aðra til að mæta og taka þátt í göngu í skemmtilegum félagsskap.
Mæting er við Samkaup (Hornið) kl. 09:00, stundvíslega. Þar sem safnast verður saman í bíla, verð fyrir sæti kr.1000-
Göngukveðja Ferðafélag Árnesinga,