Grímannsfellið 1. nóvember
Grímannsfellið er hæst í Mosfellsfjöllunum 484 m y.s. Við byrjum gönguna við Gljúfrastein, göngum upp með Köldukvíslinni og upp að Helgufossi. Þar fyrir ofan förum við yfir ánna (hægt að stikla á steinum) og upp fjallið, upp á Stórhól sem er hæsti punkturinn. Þaðan yfir á Flatafell og niður að Hádegisklettum þar sem við förum niður, göngum síðan eftir Helgadalsveginum til baka að Gljúfrasteini.
Mæting við Gljúfrastein kl 9:50. Endilega sameina sig sem mest í bíla því bílastæðin við Gljúfrastein eru frekar fá og ekki sniðugt að teppa þau öll. Þeir sem koma af höfuðborgarsvæðinu geta t.d. sameinað sig í bíla á bílastæðinu við Helgafell (í Mosó) kl 9:40. Muna eftir að klæða sig eftir veðri, nú er kominn vetur og við getum átt von á allskonar veðrum. Heitur drykkur á brúsa, vatn og nesti má heldur ekki gleymast heima.
Kveðja Ferðafélag Árnesinga