Gönguræktin 16. des. 2009

Næsta göngurækt verður ekki hefðbundin, við ætlum að mæta við Þrastarskóg kl:18:30, gengið verður um skóginn og endað á kakói og piparkökum.

Miðað við hvernig veðurspáin er þá gæti orðið stjörnubjart, en ekki mun sjást mikið til tunglsins þar sem nýtt tungl er að byrja.

 

Þeir sem vilja vita hvar þeir stíga niður í myrkrinu, geta komið með ljós eða kyndla.

grlabjuggatthurdskyr

Jólasveinar
   
Segja vil ég sögu Þeir uppi á fjöllum sáust,
af sveinunum þeim, eins og margur veit,
sem brugðu sér hér forðum í langri halarófu
á bæina heim. á leið niður í sveit.
   
Grýla var þeirra móðir Þeir jólasveinar nefndust,
og gaf þeim tröllamjólk, um jólin birtust þeir.
en pabbinn Leppalúði, Og einn og einn þeir komu,
það var leiðindafólk. en aldrei tveir og tveir.
   
Þeir voru þrettán Að dyrunum þeir læddust
þessir heiðursmenn, og drógu lokuna úr.
sem ekki vildu ónáða Og einna helst þeir leituðu
allir í senn. í eldhús og búr.
   
Lævísir á svipinn Og eins, þó einhver sæi,
þeir leyndust hér og þar, var ekki hikað við
til óknyttanna vísir, að hrekkja fólk og trufla
ef enginn nærri var. þess heimilisfrið.

 

Með jóla og göngukveðju Ferðafélags Árnesinga