Gönguræktin 12, desember

Miðvikudagskvöldið 12. desember verður kvöldganga í Hellisskóg, þar ætlum við að eiga saman notalega stund í Hellinum við kertaljós. Sigurgeir Hilmar Friðþjófsson leikstjóri, leikritahöfundur og kennari mun fræða göngufólkið um allt sem honum dettur í hug.  Safnast verður saman við hliðið í Hellisskóginum kl 18:30. Róleg ganga við allra hæfi. Allir velkomnir og þátttökugjald ekkert, mælst er til að þau ykkar sem vilja vita hvar þið stígið niður, komi með ljós. Boðið verður upp á kakó og meðlæti.
Að endingu viljum við þakka öllum þeim sem gengu með félaginu á árinu kærlega fyrir árið og hlökkum til að sjá ykkur með hækkandi sól.
Fyrsta ferð ársins 2013 er óvissuferð sem farin verður 5. janúar.

Með jóla og göngukveðju Ferðafélag Árnesinga