Friðland

Friðland að Fjallabaki 25. ágúst

Ekið er að Kirkjufellinu þar sem gangan hefst.Gengið frá Kirkjufelli, um Halldórsgil, um Sveinsgil, að Grænahrygg, í Hattver, upp Uppgönguhrygg, framhjá Skalla með stefnu á Bláhnjúk.

Hér eru drög að útbúnaðarlista sem miðast við þessa göngu:

  • Gönguskór
  • Góða vaðskó+sokka, þarf að ganga töluvert í þeim.
  • Göngusokkar (gott er að vera í tveimur pörum, einum þykkum og öðrum þunnum)
  • Handklæði
  • Legghlífar
  • Húfa
  • Vettlingar
  • Göngubuxur
  • Peysa (ull eða flís)
  • Nærföt úr ull eða ullarblöndu
  • Auka peysa
  • Vatns- og vindheldur hlífðarklæðnaður
  • Nesti til að borða á göngunni, svo sem samlokur, heitt og kalt vatn og ágætt er að hafa orkuríkt nasl.

Ekið af stað með rútu laugardagsmorguninn 25. ágúst kl 08:00. frá Samkaupum Tryggvagötu 40 Selfossi. Boðið er uppá að fólk geti geymt farangur og annað í rútunni.

Fargjald 5000- kr, greiðist inná reikn. 1169-26 1580, kt:430409-1580. Sendið staðfestingu á greiddu fargjaldi á netfangið ffarnesinga@gmail.com, hætt að taka við skráningu miðvikudaginn 22. ágúst

Krefjandi ganga, vaða þarf ár, og gengið eftir mjóum hryggjum.

Vegalengd 22 km.
Hækkun 1280 m.
Göngutími 8-10 klst.

  GPS

 

http://www.airpano.ru/files/Iceland-Fjallabak/2-2 Græni hryggur birtist neðst á skjánum

Kveðja Ferðafélag Árnesinga