Þórólfsfell og Einhyrningur 5. september
Bæði þessi fjöll eru stórkostleg útsýnisfjöll þegar vel viðrar og skyggni er gott; Tindfjöllin og Þórsmörkin blasa við af toppi þeirra. Göngustjóri í þessari ferð verður Ólafur Auðunsson en hann er velkunnugur á þessu svæði.
Einhyrningur 651 m y.s.: 350 m hækkun og göngutími um 2 klst.
Þórólfsfell 585 m y.s.: 460 m hækkun og göngutími um 2 klst.
Það verður rúta í þessa ferð. Brottför frá Samkaup á Selfossi er kl 8:00. Til að skrá sig í ferðina þarf að senda póst fyrir 1. september á ffarnesinga@gmail.comÂÂÂ svo við getum gert okkur grein fyrir því hvað við þurfum stóra rútu. Greiðsla fyrir sætið (3000 kr á mann) fer fram í rútunni. Vinsamlega mætið með rétta upphæð svo ekki þurfi að gefa til baka.
Við minnum á fatnað við hæfi, gott nesti og nóg að drekka.
Athugið að Ferðafélag Árnesinga tryggir hvorki farþega sína né farangur þeirra. Farþegar ferðast með félaginu á eigin ábyrgð þó svo að göngustjórti sé með í för. Félagið hvetur fólk til að vera ferða- og slysatryggt í ferðum sínum.
Með kveðju frá ferðanefnd. 🙂
—
Ferðafélag Árnesinga
www.ffar.is