Fjölskyldan á fjallið Mosfell 28. maí

HSK tekur þátt í verkefninu Fjölskyldan á fjallið eins og undanfarin ár og tilnefnir tvö fjöll á sambandssvæðinu.  HSK stendur fyrir göngu á Mosfell í Grímsnesi 28. maí nk. kl. 19:30.  Göngustjóri verður Hörður Óli Guðmundsson í Haga og gjaldkeri Umf. Hvatar.   
Mosfell í Grímsnesi er móbergsfjall sem er 254 m. hátt og er mjög auðvelt í uppgöngu.  Heppilegast er að ganga á fjallið frá kirkjustaðnum Mosfelli. Þar eru góð bílastæði og þá er þar príla yfir girðinguna fyrir ofan kirkjuna.

Mikið og fallegt útsýni er af Mosfelli, þar sést vel um allt Grímsnes og uppí Biskupstungur og Laugardal.

Til að komast að Mosfelli frá Selfossi er ekinn vegur nr. 35 (Biskupstungnabraut). Farið er í gegnum þéttbýlið á Borg og framhjá Laugarvatnsafleggjara ( nr. 37). Frá Laugarvantsafleggjara eru um 5 km. að Mofelli sem er á vinstri hönd og blasir við frá þjóðveginum.

Mosfell er landnámsjörð Ketilbjarnar gamla, en hann nam Grímsnesið allt upp frá Höskuldslæk, Laugardal og Biskupstungur. Sagan segir að hann hafi átt ógrynni silfurs og viljað koma því á öruggan stað svo hann lét þræla sína tvo, Haka og Bót grafa silfrið. Eftir að þeir grófu silfrið drap hann þá báða, Haka í Hakaskarði og Bót í Bótaskarði svo enginn yrði til frásagnar um hvar silfrið mikla væri að finna.

Þegar gengið er upp á fjallið frá kirkjustaðnum  Mosfelli er farið upp Bótaskarð en Hakaskarð er fyrir norðan Sel. Á Mosfelli hafa sennilega verið kirkjur frá kristnitöku, en núverandi kirkja er frá árinu 1848.

Hvolsfjall við Hvolsvöll er hitt fjallið sem HSK tilnefnir í verkefnið í ár og HSK gangan með póstkassann á Hvolsfjall verður fimmtudaginn 11. júní kl. 19.30.
Sunnlendingar eru hvattir til að taka þátt í þessu skemmtilega verkefni og það eru allir velkomnir í HSK göngurnar þann 28. maí og 11. júní.