Fimmvörðuháls 7. júlí
Ekið er að Skógum þar sem gangan hefst hjá hinum tignarlega Skógafossi. Brekkan upp með fossinum er nokkuð á fótinn og heppileg til að hita vöðvana fyrir gönguna, en eftir það er nokkuð aflíðandi á Hálsinn. Leiðin liggur frá Skógum undir Eyjafjöllum, milli Eyjafjalla- og Mýrdalsjökuls, að Básum skála Útvistar í Goðalandi.
Vegalengd 22 km, áætlaður göngutími um 8-10 klst., lóðrétt hækkun/lækkun 1000m. Hér er um að ræða eina allra vinsælustu gönguleið á Íslandi,ásamt kjarrlendi Þórsmerkur og grösugum heiðunum sunnan til gerir það að verkum að leiðin er mjög fjölbreytt, en getur þó einnig verið varasöm því skjótt skipast veður í lofti í nálægð við jökla. Það getur verið blítt og stillt veður á láglendi en þegar komið er upp á háhálsinn getur skollið á svarta þoka svo að ekki sér handa skil. Á leiðinni eru tveir skálar, annar Baldvinsskáli í eigu FÍ og Fimmvörðuhálsskáli í eigu Útivistar. Þar sem allra veðra von er á þessari leið, viljum við minna fólk að taka með sér góðan skjólfatnað.
Hér eru drög að útbúnaðarlista sem miðast við göngu yfir Fimmvörðuháls:
• Gönguskór
• Göngusokkar (gott er að vera í tveimur pörum, einum þykkum og öðrum þunnum)
• Legghlífar
• Húfa
• Vettlingar
• Göngubuxur
• Peysa (ull eða flís)
• Nærföt úr ull eða ullarblöndu
• Auka peysa
• Vatns- og vindheldur hlífðarklæðnaður
• Nesti til að borða á göngunni, svo sem samlokur, heitt og kalt vatn og ágætt er að hafa orkuríkt nasl.
Ekið af stað með rútu laugardagsmorguninn 7. Júlí kl 08:00. frá Samkaupum Tryggvagötu 40 Selfossi, að Skógum, eftir gönguna bíður okkar léttgrill og rútan í Básum. Einnig er boðið uppá að fólk geti geymt farangur og drykki í rútunni.
Fargjald 5000- kr, greiðist inná reikn. 1169-26 1580, kt:430409-1580. Sendið staðfestingu á greiddu fargjaldi á netfangið ffarnesinga@gmail.com, hætt að taka við skráningu miðvikudaginn 4. júlí.
Hækkun um 1000 m.
Göngutími 8-10 klst.
GPS til viðmmiðunar
Kveðja Ferðafélag Árnesinga