Ferð á Ármannsfell

ATH. BREYTING !!!!!
 
Þessari ferð hefur verið frestað til 16. maí.
 
Laugardaginn 16. maíl munum við ganga á Ármannsfell.
Ármannsfellið sem er 770 m.y.s. er eitt fjallanna í nágrenni Þingnvalla með heillandi útsýni í góðu skyggni. 
Mót norðri ber mest á Botnssúlum en þeirra hæst er Syðsta-Súla (1094 m.y.s). Heiðin á milli Botnssúlna og Ármannsfells heitir Gagnheiði. Á móti austri eru svo Hrafnabjörg, Kálfstindar og Lyngdalsheiði. Þegar upp á Ármannsfellið er komið blasir Skjaldbreiður við og handan hans má sjá glitta í Hlöðufell. Fyrir neðan, norðan við Ármannsfell eru svo Sandkluftir og Sandkluftavatn.
Nokkrar leiðir eru færar á fjallið. Leið verður valin eftir veðri, færð og aðstæðum.
Sagnir herma að í Ármannsfelli hafi búið þurs nokkur er Ármann hét sem hafi haft það m.a. að starfa að skipuleggja kappglímur milli kynbræðra sinna og blendinga á Hofmannaflöt undir Meyjarsæti. Þessar uppákomur hafa nú verið aflagðar fyrir allnokkru.
Hér er hlekkur á upplýsingar um svæðið; https://www.thingvellir.is/fraedsla/ornefni/aa/armannsfell/
Vegalengd er 10 – 12 km og hækkun um 750 m
Nauðsynlegur búnaður eru broddar, hlýr og góður fatnaðu að ógleymdu góðu nesti.
Farið verður frá FSU kl. 8.30 og sameinast þar í bíla og haldið að upphafsstað göngu.
Göngustjóri verður Guðjón Pétur Arnarson
Ef veður verður óhagstætt á laugardaginn verður ferðin e.t.v. færð yfir á Sunnudaginn 12. apríl.
 
Athugið að Ferðafélag Árnesinga tryggir hvorki farþega sína né farangur þeirra. Farþegar ferðast með félaginu á eigin ábyrgð þó svo að göngustjóri sé með í för. Félagið hvetur fólk til að vera ferða og slysatryggt í ferðum sínum.