Félagsgjöld og Árbók

Nú á að vera búið að senda út félagsgjöld til allra félagsmanna í Ferðafélagi Árnesinga. Félagið er deild í FÍ og njóta félagsmenn allra sömu réttinda og aðrir félagar í FÍ. Félagsgjaldið skiptist svo milli deildarinnar og móðurfélagsins. Því er nóg að borga félagsgjaldið frá okkur. Í einhverjum tilvikum höfðu félagsmenn í Ferðafélagi Árnesinga ekki tilgreint að þeir vildu færa  félagsaðild sína og hafa því fegið tvær rukkanir. Þar sem svo háttar til, er fólk beðið um að hafa samband við okkur með tölvupósti á ffarnesinga@gmail.com

Eins hefur borið við að hjón hafa bæði fengið rukkun um fullt árgjald, en helmings afsláttur er á árgjaldi annars hjóna, þótt bæði haldi fullum réttindum. Eru félagsmenn eins beðnir að hafa samband við okkur með tölvupósti ef svona háttar um. Þetta eru smá byrjunarörðugleikar við stofnun nýrrar félagsdeildar, en við kippum þessu öllu í liðinn.

Þegar fólk hefur greitt félagsgjöld sín, getur það komið við á skrifstofu formannsins, Jóns G. Bergssonar, hjá Kjarna Bókhaldi á Austurvegi 6 og sótt bæði félagsskírteini sitt og Árbók. Fljótlega eftir verslunarmannahelgi munum við fara yfir greiðslurnar og keyra þetta út til þeirra sem greitt hafa en ekki sótt sitt.

Til stendur að halda félagsfund um miðjan september og fá góðan gest á fundinn. Þá verða lögð drög að starfi félagsins á komandi vetri og ferðaáætlun fyrir næsta ár, en hún þarf að berast FÍ ekki seinna en í október svo hún komist inn í ferðabæklinginn.