Ganga úr Dyradal að Hellisheiðarvirkun.
Þetta er falleg og fjölbreytt leið þar sem er gengið er um dalina undir Henglinum vestanverðum. Áhugaverðir staðir til að stoppa við og skoða eru á leiðinni. Fjöldi sagna er af þessu svæði. Nautarétt í Marardal, útilegumennasögur og Draugatjörn eru meðal þess sem er að finna á þessu svæði.
Göngulandið er breytilegt en ekki langar brattar brekkur. Vegalengd um 17 km og uppsöfnuð hækkun 400 m.
Við miðum við að fara frá Selfossi kl. 8.00 og hittast við Hellisheiðarvirkjun kl. 8.30, þar sem við förum í rútu sem flytur okkur á upphafsstað göngu í Dyradal.
Þeir sem ætla í ferðina verða að merkja MÆTI / GOING á viðburðinn fyrir kl. 18.00 fimmtudaginn 28. Maí
Göngustjóri Björg Halldórsdóttir
Athugið að Ferðafélag Árnesinga tryggir hvorki farþega sína né farangur þeirra. Farþegar ferðast með félaginu á eigin ábyrgð þó svo að göngustjóri sé með í för. Félagið hvetur fólk til að vera ferða og slysatryggt í ferðum sínum.