Líparítfjallið Baula (917 m y.s.) er frábært útsýnisfjall sem setur mikinn svip á Borgarfjörðinn og þangað er förinni heitið laugardaginn 25. júlí.
Brottför frá Samkaup (Horninu) Selfossi kl 8:00 þar sem safnast verður saman í bíla. Viðkoma verður kl 8:45 á KFC í Mosfellsbæ fyrir þá sem koma af höfuðborgarsvæðinu og vilja safnast þar saman í bíla – athugið að leggja bílum sem fjærst innganginum á KFC. Þar sem þetta er nokkuð langur akstur og vegatollur í Hvalfjarðargöngum þá leggjum við til 2000 kr eldsneytisgjald fyrir þá sem fá far með öðrum.
Fljótlega eftir að komið er fram hjá Bifröst og Hreðavatnsskála er beygt til vinstri inn á veg nr 60 og ekið eftir honum uns komið er að brúnni yfir Bjarnardalsá þar sem ganga hefst – áætlaður komutími þangað er upp úr kl 10.
Göngutími 4-5 klst, hækkun ca 700 m. Fararstjóri verður Örlygur Steinn Sigurjónsson frá FÍ – hann mun sjá um leiðarval á fjallið.
Við minnum á fatnað við hæfi, gott nesti og nóg að drekka.
Athugið að Ferðafélag Árnesinga tryggir hvorki farþega sína né farangur þeirra. Farþegar ferðast með félaginu á eigin ábyrgð þó svo að fararstjóri sé með í för. Félagið hvetur fólk til að vera ferða- og slysatryggt í ferðum sínum.
Með kveðju frá ferðanefnd. 🙂
—
Ferðafélag Árnesinga
www.ffar.is