Uppfært
Við vorum 3 sem fórum í þessa ferð. Hér má sjá myndir úr ferðinni: Halla Eygló Sveinsdóttir | Facebook
Laugardaginn 11. apríl höldum við á Akrafjall.
Hugmyndin er að fara hefðbundna leið og fara stóra hringinn.
Þetta er í meðallagi erfið ganga u.þ.b. 14 km og hæðsti punktur fjallsins er 643 m.y.s.
Nauðsynlegur búnaður er: Broddar, hlýr og góður fatnaður og gott og orkuríkt nesti.
Göngustjóri verður Guðjón Pétur Arnarson.
Hittumst við FSU á Selfossi kl. 08.30 þar sem sameinast verður í bíla og ekið saman að upphafsstað göngunnar.
Ath. Ferðafélag Árnesinga tryggir hvorki farþega sína né farangur þeirra. Farþegar ferðast með félaginu á eigin ábyrgð þó svo að göngustjóri sé með í för. Félagið hvetur fólk til að vera ferða og slysatryggt.