AÐALFUNDUR

 

Aðalfundur Ferðafélags Árnesinga verður haldinn föstudagskvöldið 26. feb. n.k. kl: 20:00 í karlakórsheimilinu að Eyrarvegi 67 Selfossi.

Eftir venjuleg aðalfundarstörf, kemur Þór Vigfússon á fundinn og flytur smá tölu um ferðamennsku fyrri tíma, og hvað eina sem honum dettur í hug.
Síðan tekur við kaffihúsa- og/eða pöbbakvöld með myndum á skjávarpanum, eru félagsmenn hvattir til að koma með myndir á USB eða geisladiski sem þeir vilja að aðrir geti notið með þeim.