Þá er komið að okkar árlegu strandgöngu. Nú hefjum við gönguna við smábátahöfnina í Keflavik og göngum út fyrir Voga á Vatnsleysuströnd. Vegalengdinn er um 20 km. Gangan frá smábátahöfninni út fyrir Njarðvík er fin göngu hjólastígur sem liggur með ströndinni. Þá tekur við melar óg mólendi meðfram ströndinni á Vogarstapa. Getur það verið þýft og þyngra yfirferðar á köflum. Hækkun á göngu er mjög lítil. Lagt verður á stað frá FSU kl. 8.00 sameinast í bíla og haldið í voga á Vatnsleysuströnd. Gott að þeir sem þyggja far með öðrum greiði 1000 kr fyrir farið. Stopum smá við N1 í Hafnafirði og hittum þar vonandi fleiri félaga. Í Voga kemur síðan hópferðabíll sem flytur okkur á upphafsstað göngu í smábátahöfninni. Verðum þar ca. kl. 9.40 Kostar far með honum 1000 kr. Hafa með sér lausafé.
Gangan hefst síðan um kl. 10.00
Endilega merkið við ef þið ætilið að koma. Þurfum að vita út af stærð á bíl til að flytja okkur.
Göngustjóri á vegum FFÁR
Björg Halldórsdóttir
Athugið að Ferðafélag Árnesinga tryggir hvorki farþega sína né farangur þeirra. Farþegar ferðast með félaginu á eigin ábyrgð þó svo að göngustjóri sé með í för. Félagið hvetur fólk til að vera ferða og slysatryggt í ferðum sínum.
Með göngukveðju ferðanefndin