Laugardaginn 27 maí ætlum við að ganga á Þórólfsfell í Fljótshlíð.
Þórólfsfell er 574 metra hár móbergsstapi. Útsýnið af toppi Þórólfsfells er stórfenglegt með jöklana þrjá, Tindfjallajökul, Eyjafjallajökul og Mýrdalsjökul hringinn í kring.
Best er að leggja í göngu frá húsinu í Felli. Stefnan er tekin beint á toppinn og síðan niður með Þórólfsgljúfri.
Fjallið er nokkuð flatt að ofan og þarf að ganga aðeins inn á fjallið áður en raunverulegum toppi þess er náð. Þar er varða með fastmerki frá Landmælingum Íslands frá árinu 1958. Kort til viðmiðunnar.
Við leggjum af stað frá planinu við Fjölbrautarskólann á Selfossi kl 9:00 og keyrum sem leið liggur austur í Fljótshlíð
Hækkun 500 m
Göngulengd 7km
Göngutími 3-4 klst
Göngustjóri verður Magnús Baldursson