Gönguferðir verða báða dagana. Ólafur Auðunsson þekkir Þórsmerkursvæðið mjög vel og verður göngustjóri. Nóg er af fallegum gönguleiðum á svæðinu, t.d. á laugardeginum er áætlað að fara Tindfjallahringinn gengið er rólega, á sunnudeginum eftir morgunmat kl:10:00 er áætlað að fara á Valahnjúk eða í Gluggahelli, en allt mun þetta fara eftir veðri hvert verður farið.
Sameiginlegur kvöldmatur verður á laugardagskvöldinu; grillað lambakjöt og eitthvað gott með því. Annan mat þarf fólk að hafa með sér og sömuleiðis alla drykki.
Eins og áður verður gítar með í för en allar skemmtilegar uppákomur eru vel þegnar.
Það er með þessa ferð eins og aðrar á vegum FFÁR að kostnaði er stillt mjög í hóf, verð er 5.000- kr fyrir félagsmenn í Ferðafélagi Árnesinga, en kr. 10.000- utan félags, innifalið í verði er rútuferð, gisting og matur á laugardagskvöldinu.
Náttúran og gróðurinn skartar sínu fegursta í Þórsmörk á þessum tíma og dulúðlegir og mildir haustlitir hafa dreymandi áhrif á ferðafélaga.
Þátttakendur þurfa að skrá sig í þessa ferð í síðasta lagi kl:12:00 fimmtudaginn 21. september, með því að greiða inn á reikning Ferðafélagsins kt:430409-1580, reikn: 189-26-1580.
Með góðri kveðju Ferðafélag Árnesinga.