Skriða frá Gullkistu 6. október
Fjallið Skriðan sem er upp af Laugardal, er tæplega þúsund metra hátt og útsýn af tindi þess þykir fögur og tilkomumikil. Uppi á Skriðu er djúpur gígur með vatni. Gangan á fjallið tekur u.þ.b. 6. klst. en þykir ekki erfið.
Gullkista er kistulaga hnúkur á Miðdalsfjalli sem blasir við frá Laugarvatni. Hnúkurinn á að vera kista, sem er full af gulli, og opnast aðeins ef tveir samhentir bræður búa í Miðdal og ganga þangað upp afturábak án þess að líta um öxl, eða hugsa ljótt. Héðan leggjum við af stað í gönguna.
Mæting er við Samkaup (Hornið) kl. 9:00, stundvíslega, þar sem safnast verður saman í bíla,verð fyrir sæti 1000-kr.
Vegalengd: 17 km
Göngutími: um 6 klst.
Göngutími: um 6 klst.
Byrjunarhæð 651
Mestahæð: 997. m
Mestahæð: 997. m
Heildarhækkun 866. m
GPS til viðmiðunar
Kveðja Ferðafélag Árnesinga