Gosferð 24. júlí.
Ákveðið hefur verið að fara að gosstöðvunum á Fimmvörðuhálsi laugardaginn 24. júlí n.k. Við ætlum að leggja af stað frá Horninu stundvíslega kl: 08:00, ekið er inn að Strákagili inn af Básum , þar sem áætlað er að gangan hefjist um kl: 10:30. Gönguferðin er um Morinsheiði, upp Bröttufönn að gosstöðvunum er um 6 klst ganga, vegalengt um 10. km. og hækkun um 700-800. metrar.Nauðsynlegt er að allir þátttakendur séu vel útbúnir með góðan skjólfatnað og gott nesti. Við náttúruhamfarir eins og áttu sér stað á Fimmvörðuhálsi eru aðstæður óvenjulegar og mikilvægt að fara um svæðið af varkárni. Reikna má með því að gangan upp á háls verði afar sterk og mögnuð náttúruupplifun, en rétt er að vera með buff eða klút, eða rykgrímu ásamt hlífðargleraugum í bakpokanum. Ef áhugi er fyrir því að taka rútu þarf að tilkynna þátttöku með því að senda póst á netfangið ffarnesinga@gmail.com fyrir kl: 20:00 miðvikudaginn 21. júlí. Mynd úr ferð á Gosstöðvarnar í apríl sl.